Föstudaginn 13 maí verður haldin opnunarhátíð Tónlistar og ráðstefnuhúsinu Hörpu og þá um helgina verður mikið um dýrðir í húsinu. Öllum Íslendingum ungum sem öldnum er boðið á þessa opnunarhátíðina. Af því tilefni munum við gefa út blað þann dag tileinkað Hörpu.
Fréttatíminn hefur komið núna út í rúma sjö mánuði og gengur vel. Á þessum tíma höfum við náð fótfestu sem sterkur auglýsingamiðill sem skilar auglýsendum árangri. Fréttatíminn er óháð blað í eigu nokkura starfsmanna þess og er ekki háð viðskipt- eða hagsmunablokkum. Blaðinu er dreift í 86 þúsund eintökum um land allt á fimmtudagskvöldi og föstudagsmorgni. Þar af er um 74 þúsund eintökum dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt könnun Capacent janúar til mars mældist lestur/fletting Fréttatímans 63% á höfuðborgarsvæðinu meðal fólks 25 til 80 ára. Blaðið stendur undir nafni sem helgarblað. Því er ekki bara flett á föstudagsmorgni heldur sýna mælingar að það er lesið jafnt yfir helgina.

No comments:
Post a Comment