Ágæti auglýsandi, telur þú að auglýsinga magn í blöðum hafi áhrif á virkni auglýsinga? Skiptir það þig máli hversu hátt auglýsingahlutfallið er í blöðum sem þú nýtir þér? Finnst þér sem auglýsanda að hátt auglýsingahlutfall dragi úr athygli einstaka auglýsinga?
Dagskrárblöðin á Akureyrir (http://www.n4.is/magazine) virðast ganga ágætlega sem dæmi og þar er auglýsingahlutfallið sjálfsagt yfir 80% og eina efnið dagskrá ljósvakamiðla.
Ég held að flestir svari því til játandi að það skiptir máli hversu hátt auglýsingahlutfallið er og að það skipti máli hvernig farið er með auglýsinguna þína.
Hvar liggja mörkin?
Það er sjálfsagt heldur hátt hlutfallið í dagskrárblöðum á Akureyri en þau gefa sig ekki heldur út fyrir að vera annað en auglýsingablöð. Þú veist að hverju þú gengur. Þar eru nánast bara auglýsingar og dagskrá. Þeir sem eru að skoða þessi blöð hljóta því að vera að skoða auglýsingar. Á það sama við um prentmiðla eins og til dæmis Fréttablaðið?
Auglýsingahlutfall í helgarútgáfu Fréttablaðsins 26. febrúar var 74%. Bara í aðalblaði Fréttablaðsins var auglýsingahlutfall 69%. Um sömu helgi var hlutfallið í Fréttatímanum 58%. Það hlýtur að skipta máli hvernig farið er með auglýsinguna þína. Það hlýtur að hafa áhrif á virði auglýsingarinnar þinnar hvert auglýsingahlutfall er í blaði og þá um leið hversu hátt verð þú ert tilbúinn að greiða fyrir birtinguna.
Það ætti sem sagt að skipta máli þegar þú velur miðill til þess að birta auglýsinguna þína hversu hátt auglýsingahlutfallið er. Auglýsingin er ekki bara tækifæri til þess að koma fyrir sjónir markhópssins (OTS) sem skiptir eðlilega miklu máli, heldur skapar hún eðlilega líka ímynd þína. Það skiptir því máli í hvernig umhverfi hún er staðsett og þá um leið hversu mikla athygli hún er líkleg til þess að fá.
Fréttatíminn mælist með 70% lestur í höfuðborginni og auglýsingahlutfall í blaðinu var eins og áður sagði 58%. Hvar auglýsir þú?
No comments:
Post a Comment